Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
Listaverkið "Regnbogadansinn" prufukeyrður.
14.8.2009 | 19:32
Í dag var listaverkið " Regnbogadansinn " , sem afhjúpaður verður á Ljósanótt 2009 prufukeyrður með aðstoð frá slökkvuliði Suðurnesja. Verkið kom betur út en reiknað var með. Magnaðir regnbogar dönsuðu um verkið á meðan kveikt var á því. Verkið er tengt við einn brunahana og spítir það vatni úr mismunandi stútum í allt að 4-5 metra hæð. Verkið verður afhjúpað 3. september á Ljósanótt kl. 21.30. Sjá má nánar um verkið á heimaslóðinni www.1og8.com
Vinnustofutónleikar á Ljósanótt.
13.8.2009 | 23:14
Fimmtudaginn 3. september 2009 kl. 21.00 verður Guðmundur R Lúðvíksson myndlistamaður með Vinnustofutónleikar í Svarta Pakkhúsinu í Keflavík ásamt fjölda gestaleikara.
Flutt verða 13 frumsamin lög. Engin aðgangseyrir er að tónleikunum.
Hljóðfæraleikarar eru:
Píanó: Steinar Guðmundsson, Kontra og raf bassi: Páll Elvar Pálsson,
Raf gítar; Sveinn Björgvinsson , Fiðla: Kjartan Már Kjartansson,
Mandólín, klassískur gítar og gítar;Hlöðver S Guðnason,
Harmonikka: Sigurður Jónsson , Trommur: Marinó Már Magnússon,
Kassagítarar: Guðmundur Símonarson, Slagverk: Ágúst Ingvarsson,
Kór: Kvennakór Suðurnesja, Söngur, munnharpa og gítar: Guðmundur R Lúðvíksson, Ukulele; Steinn Jónsson .
Kl. 20. 30 verður einnig verkið "Regnbogadansinn" settur í gang. En verkið er 12 metra langt vatnsverk, sem myndar "vatnsbragga" sem hægt
verður að ganga í gegnum. Verkið er lýst upp með sterkum ljósum sem framkalla regnboga inni í verkinu. Fólk getur því gengið í gengn og í
regnbogana og óskað sér um leið. Verkið verður staðsett fyrir framan Pakkhúsið, við sjávargarðinn.